Á Flatey er opið hús og því engar borðapantanir, nema fyrir 8 manns eða fleiri. Efri hæðin á Grandagarði býður líka upp á allt að 70 manna pítsupartí við hin ýmsu tilefni.
Mán - Sun
11:30 - 21:00
Biðtími
5-10 mín
Sun - Fim
11:30 - 21:00
Fös - Lau
11:30 - 22:00
Biðtími
5-10 mín
Mán - Þri
11:30 - 21:00
Mið - Sun
11:30 - 22:00
Biðtími
5-10 mín
Lau - Fim
11:30 - 20:00
Fös
11:30 - 19:00
Biðtími
5-10 mín
Mán - Sun
11:30 - 21:00
Biðtími
5-10 mín
Við hjá Flatey bökum pítsuna þína í 500 gráðu heitum ofni frá Izzo Forni í Napólí. Hún bakast á aðeins mínútu og einkennist af pítsuhefðinni sem kennd er við Napólíborg - hefð hefur varðveist svotil óbreytt allt frá 18. öld og helgast af eldsnöggum bakstri, einföldu gæðahráefni og vönduðu handbragði.Deigið gerum við sjálf, daglega, úr hveiti, vatni, salti og fersku geri (engu öðru) og látum það þroskast í rúman sólarhring. Þetta skilar sér í sætum og bragðmiklum botni sem er mjúkur undir tönn og léttur í maga.Osturinn er ferskur mozzarella, eða það sem Ítalir kalla fiordilatte. Hann inniheldur fátt annað en mjólk og salt og er mildur, ferskur og fullkominn fyrir heitan ofn. Sósan er einfaldlega maukaðir San Marzano tómatar, keyptir beint frá býli Rega fjölskyldunnar við rætur Vesúvíusar í Campania. Það þarf ekki að flækja málin til að gera góða pizzu. Fá, góð hráefni. Rétt handbragð. Metnaður í hverju skrefi.
Matseðill